- Leikið mér með geislavirk efni
- Fengið frumurnar mínar til að framleiða LL-37 ( vona ég)
Já, í eðlisfræði tíma í gær þá mætti kennarinn með geislavirk efni í stofuna til að leyfa okkur að fikta. Þess má geta að þetta voru litlir teningar í plasthylki þannig að engir alfa geislar komust út, einungis beta og gamma geislar sem er nú ekkert big deal.
Við erum sem sé að fara að vinna svo kallað Group 4 verkefni en þá er ákveðið eitt þema fyrir öll raunvísindin og svo er fólki skipt í hópa og hver hópur þarf að vinna að fyrirlestri og plakati um þemað. Sértu í fleiru en einu raunvísindafagi þarftu að gera eitt í hverju. Í þetta skiptið var ákveðið að hafa topicið: Aluminium smelters ( álver).
Í eðlisfræði ætlum við að mæla virkni áls til að blokka geislun, mjög spenndi. Svo skemtilega hljóð sem heyrast frá the ray dectectors… geislunar nemar á íslensku?!? veit ekki.
Svo er ég að vinna að minni skemmtilegu rannsókn uppi í HÍ með Eduardo. Er alveg að verða búin. Kláraði að rækta frumurnar í síðustu viku og að færa þær yfir á 6 hólfa frumu diska. Skipti síðan um æti á þeim þannig að það væri ekki neitt bakteríudrepandi í ætinu ( ég ætla að mæla hversu mikið frumurnar framleiða af því, þannig ég vil ekki hafa það í ætinu), blandaði síðan LCA gallsýru við tvö hólfin, Bu gallsýru við önnur tvö og í hinum tveimur hólfunum er svo “the controlled group”.
Í dag tók ég ætiblönduna úr hverju hólfi og lét í 2ml tilraunaglös, síðan henti ég frumunum. Það var sárt, var orðin mjög náin þeim.
Síðan frysti ég ætið í -80°C.
Annars er það bara læra meira eins og motherfucker… I’ll do that…now
Sandra